07.05.2012 23:114.maí![]() Golta bar tveimur hrútum þeir eru undan Tjörva ég ætlaði að reyna fá mógolsótt en það tókst ekki en golta kom með golsótta og botnótta gimbur í fyrra á móti botnóttum hrút. ![]() Úlla bar þessum hrút en hann er undan Fróða en Úlla er tvílembingur á móti Blökk. ![]() Oprah bar hrút og gimbur undan Balda Skrifað af valla 07.05.2012 23:06Blökk![]() Blökk er gemsi og bar hún þessum svarflekkótta hrút þann 2.maí hann hann er undan Fróða. Skrifað af valla 07.05.2012 22:55sauðburður![]() næst í röðinni var Dugga hún bar hrút og gimbur þann 1.maí þu eru undan sæðishrútnum Sigurfara.![]() Fönn bar líka 1.maí einum hrút hann er undan Frama. ![]() Vala bar einnig 1.maí grárri gimbur og svörtum hrút þau eru undan stóra Grána. Skrifað af valla 30.04.2012 13:36sauðburður![]() sauðburður byrjaði hér reyndar 16.mars þá fæddist þessi flekkóta gimbur og er hún undan Rósu á móti henni var hvítur hrútur sem drapst ekki hef ég hugmynd undan hvaða hrút þetta er. ![]() 21.mars komu svo þessar tvær gibbur undan Spólu og hef ég ekki hugmynd heldur undan hverjum þær eru. ![]() Á laugardag 28.apríl fæddust svo þessi tvö þau eru undan Svölu og sæðishrútnum Gosa frá Ytri Skógum þetta er hrútur og gimbur. til gamans má geta þess að Svala var með tvö hrúta í fyrra þeir fóru í sláturhús og vigtuðu báðir yfir 20 kg og fóru í E3 og E3+. ![]() svo komu þessi tvö hjá Sigga-Svört í gær 29.apríl hrútur og gimbur tekinn með keisara skurði hjá Hjalta dýralækni þau eru undan sæðis hrútnum Ljúf frá Árbæ. Skrifað af valla 23.04.2012 10:29suðsháttur og slóðaskapurrrhef undan farið sínt þessari síðu allgjöran sauðshátt og slóðaskap ekki sinnt henni neitt. En betur má ef dugaskal. Það sem helst hefur verið um að vera er að tvær ær eru longu bornar sú fyrri 16.mars og sú síðari viku seinna úr þeirri fyrri komu hvítur hrútur og flekkótt gibba hrúturinn hafði þetta ekki af. sú seinni kom með tvær hvítar gibbur. frá því síðast var skrifað hér er búið að fara á árshátíð sauðfjár bænda á hótel sögu og var það meiri háttar skemtun með góðu fólki. einnig fórum við Bibba á tónleika í Hörpu Freddie Mercury eftirhermu minningar tónleika meiriháttar skemmtun. Hestamennskunni hefur verið sinnt sem aldrei fyrr og er nánast hægt að segja að ég sé búinn að vera á reiðnámskeiði síðan á réttum. Skrifað af valla
|
Eldra efni
mynda safn Nafn: Valgeir þór MagnússonTölvupóstfang: tekkur@gmail.comAfmælisdagur: 9.águstHeimilisfang: GrundarfirðiTenglar
clockhere
|